Æfingabúðir SamVest!

Æfingabúðir SamVest!
09/10/2015 Jenný Nilsson

ÆFINGABÚÐIR

17. – 18. OKTÓBER 2015

SamVest-samstarfið stendur fyrir æfingabúðum í frjálsum íþróttum fyrir 10 ára (árgangur 2005) og eldri á Laugum í Sælingsdal í Dalabyggð 17. – 18. október nk.

Mæting að Laugum er kl. 13 á laugardeginum og heimferð áætluð um kl. 15 á sunnudeginum.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur sjái sjálfir um að koma sér á staðinn – eða að héraðssamböndin skipuleggi ferðir (getur verið mismunandi eftir svæðum). Þjálfarar verða Unnur Jónsdóttir frá UMSB, Þorbjörg Petrea Pálsdóttir frá HHF og Hlynur Guðmundsson frá Aftureldingu í Mosfellsbæ.

Þátttökugjald er 3.000 kr. fyrir hvern þátttakanda (gisting og fæði) og greiðist við komu. Boðið verður uppá ávexti við komuna, kaffihressingu og kvöldmat á laugardeginum, morgunmat og hádegismat á sunnudeginum. Við stólum á að foreldrar eða aðrir fylgdarmenn fáist í hlutfalli við fjölda þátttakenda frá hverju sambandi. Gist verður í skólastofum að Laugum. Þátttakendur taka með sér svefnpoka eða annan sængurfatnað, en dýnur eru á staðnum. Einnig þarf að taka með sér sundföt og íþróttaföt (fyrir úti- og inniæfingar) og annan staðalbúnað.

Skráningarfrestur er til miðvikudagskvöldsins 14. október.
Það er hægt að skrá sig beint í skjalið hér að neðan.

Síðast var rosa fjör – sjáumst hress að Laugum!

Framkvæmdaráð SamVest

Samvest æfingabúðir að Laugum okt. 2015