2. kvöldmót UDN í frjálsum

2. kvöldmót UDN í frjálsum
11/07/2015 Jenný Nilsson

Þriðjudaginn 14. júlí verður haldið 2. kvöldmót UDN í frjálsum íþróttum í Dalnum í Búðardal. Mótið hefst kl 19:00

Keppt verður í eftirfarandi greinum;

8 ára og yngri;  Boltakast, 200m og langstökk

9-10 ára; Boltakast, 200m og langstökk

11-12 ára; Spjótkast, 600m og langstökk

13 ára og eldri; spjótkast, 800m og langstökk

Skráningar berist á netfangið hannasigga@audarskoli.is – gefa upp nafn, félag, kennitölu og keppnisgreinar (það verður einnig skráð á staðnum, en að sem flestar skráningar séu komnar fyrirfram flýtir heilmikið fyrir).
Ef foreldrar, afar og ömmur eða systkini geta rétt fram hjálparhönd við tímatökur, mælingar, ritun eða sækja áhöld á mótinu þá er það vel þegið.

Úrslit frá 1. kvöldmóti eru komin á fri.is

Sjáumst

Frjálsíþróttaráð,
Hanna Sigga, Arnar og Herdís Erna