7 vikna íþróttanámskeið!

7 vikna íþróttanámskeið!
13/10/2015 Jenný Nilsson

UDN stendur fyrir fjölbreytt úrval af íþróttum næstu sjö vikurnar inn á Laugum!

Æfingarnar fyrir mið og elsta stig verða á þriðjudaga kl. 16:30-18:30 ogfimmtudaga kl 15:30-17:15.

Annan hvern laugardag kl 10.00-12:00 fyrir yngsta, mið og elsta stig.

Laugardaga 17 október, 31 október, 14 nóvember og 28 nóvember.

Yngsta stig fær æfingar á gæslutíma á þriðjudaga og fimmtudaga kl 13:45 – 14:45.

Akstur verður á þriðjudögum og fimmtudögum frá Auðarskóla en foreldrar þurfa að sækja inn að Laugum.

Enginn akstur er á laugardögum.

Fyrsta æfing er fimmtudaginn 15 október!

Verð 9.500 kr á iðkanda á elsta stig, 50 % systkina afsláttur.

Verð 9.500 kr á iðkanda á mið stig, 50% systkina afsláttur.

Verð 2.000 kr á iðkanda á yngsta stig fyrir æfingar inn á Laugum.

Skráning hjá Jenný á udn@udn.is fyrir fimmtudaginn 15 október.

Við skráning verður æfingagjald innheimt í gegnum heimabanka.

Skráning er tekinn gild þegar búið er að borga!

Þeir sem taka þátt fá að upplifa ýmsar fjörugar og skemmtilegar íþróttaæfingar næstu 7 vikurnar. Boðið verður meðal annars uppá fótbolta, blak, inníbandy, badminton, körfubolta, frjálsar, útivist og sundæfingar svo eitthvað sé nefnt. Hver æfing verður með sínu sniði og fjölbreyttir þjálfarar koma til að vera með æfingarnar. En eitt er víst að það verður alltaf eitthvað spennandi að gera.

Þjálfarar á yngsta stigi eru Pálmi, Pálína Kristín, Jóhann og Jenný.

Þjálfarar á æfingar á Laugum eru Siggi Bjarni, Jörgen, Einar Jón, Anna Sigga, Hrönn, Pálmi, Jenný og 4 sjálfboðaliðar á Laugum.

Mikilvægt að mæta með íþróttaföt, íþróttaskó, stuttbuxur, bol og sundföt og gera ráð fyrir útivist í hverju sinni.

Ávextir verða í boði inn á Laugum á þriðjudögum og fimmtudögum og allir fá gefins vatnsbrúsa.