Barnamót HSS

Barnamót HSS
28/08/2014 stjori

Barnamót HSS – Sævangi, laugardaginn 30. ágúst kl. 13:00

Keppt verður í eftirfarandi greinum og aldursflokkum:

Pollar og pæjur 8 ára og yngri:
60m hlaup, langstökk og boltakast.

Hnokkar og hnátur 9 -10 ára:
60m hlaup, langstökk og boltakast.

Strákar og stelpur 11 – 12 ára:
600 m hlaup, 60m hlaup, langstökk, hástökk, spjótkast og kúluvarp.

Móthaldarar eru Geislinn og Hvöt og bjóða þau upp á pylsur og svala að móti loknu. Allir þátttakendur fá verðlaunapening.

Skráning fer fram hjá formönnum félaga en henni lýkur kl. 18:00 föstudaginn 29. ágúst.
Öll velkomin!