Sumarmót SamVest

Sumarmót SamVest
05/07/2017 Svana Jóhannsdóttir

Héraðssamböndin UDN, HSH, UMSB, HSS, HHF, UMFK og Umf. Skipaskagi blása til hins árlega sumarmóts SamVest. Mótið verður haldið á íþróttavellinum í Borgarnesi sunnudaginn 9. júlí n.k. og hefst kl. 13.00. 

Mótið er fyrir alla aldurshópa. Keppnisgreinar eru sem hér segir eftir aldursflokkum:

8 ára og yngri:  60 m hlaup, boltakast, langstökk og 400 m hlaup

9-10 ára:             60 m hlaup, boltakast, langstökk og 600 m hlaup

11 ára:                60 m hlaup, langstökk, kúluvarp, hástökk, spjótkast, 600 m hlaup

12 ára:                sömu greinar og hjá 11 ára

13 ára:                100 m hlaup, 60 m grind, hástökk, langstökk, kúluvarp, kringlukast, spjótkast, 600/800 m

14 ára:                100 m hlaup, 80 m grind, hástökk, langstökk, kúluvarp, kringlukast, spjótkast, 600/800 m

15 ára:                100 m hlaup, grindahlaup (80 m hjá stelpum og 100 m hjá strákum), langstökk, hástökk,

                             kúluvarp, spjótkast, kringlukast, 600/800 m

16 ára og eldri: 100 m hlaup, grindahlaup (100 m hjá stelpum/konum, en 110 m hjá strákum/körlum),

                             langstökk, hástökk, kúluvarp, spjótkast, kringlukast, 600/800 m

Hægt er að sjá skiptingu greina og dagskrá mótsins hér í mótaforriti FRÍ.

Mótið er opið fyrir gesti og er skráningargjald á þátttakanda utan SamVest 2000 kr

 

Stefnt er að því að grilla fyrir mannskapinn í lok keppni.

Þátttakendur geta skráð sig og keppnisgreinar sínar inní þetta skjal hér

Endilega skráið sem allra fyrst – og í síðasta lagi til kl. 15.00 föstudaginn 7. júlí n.k.


Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum, það gefur mikinn stuðning. 

Talsvert af starfsfólki þarf á svona mót og biðjum við þau sem vilja og geta aðstoðað að senda skilaboð um það á bjorgag@gmail.com eða inná SamVest-hópinn á Facebook (með nafni og félagi).

Fjölmennum á gott mót!

Hlökkum til að sjá ykkur!

Með frjálsíþróttakveðju

SamVest-samstarfið

Fréttin er tekin af: http://bjorg98.wixsite.com/samvest/single-post/2017/06/30/Sumarm%C3%B3t-SamVest-9-j%C3%BAl%C3%AD-2017