Tómstundabæklingur 2015

Tómstundabæklingur 2015
04/12/2014 stjori

Áætlað er að gefa út síðari hluta janúar tómstundabækling. Þar yrði fjallað um tómstunda- og æskulýðsstarf  janúar – maí 2015 í Dalabyggð. Sú nýbreytni verður og að fyrirtæki og aðrir geta keypt auglýsingar í bæklinginum.

 

Æskilegt er að þeir sem standa að tómstunda- og félagsstarfi í sveitarfélaginu komi því á framfæri í bæklinginum. Þannig er hægt að koma fjölbreyttu félagsstarfi allra aldurshópa á framfæri á einum stað og þeir sem þess óska geta tekið þátt.

 

Til að styrkja útgáfu bæklingsins er fyrirtækjum og öðrum sem þess óska gefið tækifæri á ódýrum auglýsingum í bæklinginum. Hægt er að aðstoða við gerð auglýsinga, t.d. þorrablót, viðburðir og fleira.

 

Nánari upplýsingar veitir Guðni á netfanginu tomstund@dalir.is og í síma 849 7336.