Tvö gull og þrjú silfur á Unglingalandsmóti UMFÍ

Tvö gull og þrjú silfur á Unglingalandsmóti UMFÍ
08/08/2017 Svana Jóhannsdóttir

16 keppendur UDN kepptu um helgina á Unglingalandsmóti UMFÍ sem fram fór á Egilsstöðum. Mótið var vel heppnað, gott veður og fjölbreyttar greinar. Keppendur UDN kepptu í frisbígolfi, frjálsíþróttum, glímu, knattspyrnu og stafsetningu. Árangur var mjög góður og mikið var um bætingar hjá keppendum UDN. Katrín Einarsdóttir varð tvöfaldur Unglingalandsmótsmeistari, í kúluvarpi og hástökki, Aníta Hanna Kristjánsdóttir var í 2. sæti í kúluvarpi og spjótkasti og Vignir Smári Valgarðsson varð í 2. sæti í kringlukasti. Einnig náðu tvær blandaðar boðhlaupssveitir með keppendum UDN 3. sæti.

UDN óskar keppendum UDN til hamingju með góðan árangur og óskar UMFÍ og ÚÍA til hamingju með flott mót.

Árangur keppenda UDN má sjá hér:

Keppnisgrein Nafn Gengi
80 m. Hlaup 13 ára Albert Hugi Arnarsson Hljóp á 13,51 sek – 20. sæti
kúluvarp 13 ára Albert Hugi Arnarsson Kastaði 5,73 m – 13. sæti
langstökk 13 ára Albert Hugi Arnarsson Stökk 3,06 m – 18. sæti
spjótkast 12 ára Aníta Hanna Kristjánsdóttir Kastaði 25,33 m – 2. sæti
kúluvarp  12 ára Aníta Hanna Kristjánsdóttir Kastaði 7,83 m – 2. sæti
kúluvarp 11 ára Borghildur Birna Eiríksdóttir Kastaði 4,75 m – 21. sæti
langstökk 11 ára Borghildur Birna Eiríksdóttir Stökk 2,91 m – 21. sæti
langstökk 11 ára Elísa Rún Vilbergsdóttir Stökk 2,07 m – 23. sæti
langstökk 11 ára Ísak Logi Brynjólfsson Stökk 3,06 m – 14. sæti
kúluvarp 11 ára Jóhanna Vigdís Pálmadóttir Kastaði 6,23 m – 10. sæti
langstökk 11 ára Jóhanna Vigdís Pálmadóttir Stökk 3,08 m – 18. sæti
4×100 blandað lið Jóhanna Vigdís Pálmadóttir Sveitin hljóp á 66.25 sek – 3. sæti
200 m. Hlaup 11 ára Katrín Einarsdóttir Hljóp á 32,70 sek – 4. sæti
þrístökk 11 ára Katrín Einarsdóttir Stökk 7,93 m – 4. sæti
kúluvarp 11 ára Katrín Einarsdóttir Kastaði 7,63 m – 1. sæti
hástökk 11 ára Katrín Einarsdóttir Stökk 1,27 m – 1. sæti
langstökk 11 ára Katrín Einarsdóttir Stökk 3,73 m – 6. sæti
60 m. Hlaup 11 ára Katrín Einarsdóttir Komst í úrslit og hljóp á 9,54 sek – 6. sæti
4×100 blandað lið Katrín Einarsdóttir Sveitin hljóp á 66,25 sek – 3. sæti
60 m. Hlaup 12 ára Ketill Ingi Guðmundsson Hljóp á 10,58 sek – 12. sæti
60 m. Hlaup 11 ára Mikael Magnús Svavarsson Hljóp á 10,44 sek – 26. sæti
langstökk 11 ára Mikael Magnús Svavarsson Stökk 3,16 m – 12. sæti
hástökk 11 ára Mikael Magnús Svavarsson Stökk 1,07 m – 10. sæti
kúluvarp 14 ára Solveig Rúna Eiríksdóttir Kastaði 5,85 m – 18. sæti
spjótkast 14 ára Solveig Rúna Eiríksdóttir Kastaði 17,08 m – 16. sæti
spjótkast 14 ára Tindur Ólafur Guðmundsson Kastaði 17,38 m – 12. sæti
spjótkast 15 ára Védís Fríða Kristjánsdóttir Kastaði 21,49 m – 8. sæti
langstökk 16-17 ára Vignir Smári Valbergsson Stökk 5,35 m – 9. sæti
hástökk 16-17 ára Vignir Smári Valbergsson Stökk 1,64 m – 4. sæti
spjótkast 16-17 ára Vignir Smári Valbergsson Kastaði 41,75 m – 5. sæti
kringlukast 16-17 ára Vignir Smári Valbergsson Kastaði 29,57 m – 2. sæti
þrístökk 16-17 ára Vignir Smári Valbergsson Stökk 11,30 m – 4. sæti
 4×100 blandað lið Sam- Vest  Vignir Smári Valbergsson  Sveitin hljóp á 53,56 sek – 3. sæti
Knattspyrna
Knattspyrna 11-12 ára Borghildur Birna Eiríksdóttir Lið: Skytturnar: 8. sæti
Knattspyrna 11-12 ára Jóhanna Vigdís Pálmadóttir Lið: Skytturnar: 8. sæti
Knattspyrna 11-12 ára Eysteinn Fannar Eyþórsson Lið: Bland í poka: 12. sæti
Knattspyrna 11-12 ára Mikael Magnús Svavarsson Lið: Bland í poka: 12. sæti
Knattspyrna 15-16 ára Sandra Rún Gústafsdóttir Lið: Fancy Footballers: 10. sæti
Frisbígolf 11-14 ára Ketill Ingi Guðmundsson Ekki komin úrslit
Glíma 11-12 ára Jóhanna Vigdís Pálmadóttir 4.-5. sæti
Stafsetning 11-12 ára Hrafnhildur Eva Bergsdóttir 9.-14. sæti