Vetrarleikar Glaðs

Vetrarleikar Glaðs
11/04/2016 Jenný Nilsson

Vetrarleikarnir fara fram á reiðvellinum í Búðardal laugardaginn 16. apríl og hefst  mótið stundvíslega klukkan 12:00.

Dagskrá:

  1. Forkeppni
  • Fjórgangur: opinn flokkur V2, barnaflokkur V5, unglingaflokkur V2 og ungmennaflokkur V2
  • Fimmgangur F2: opinn flokkur
  • Tölt: pollaflokkur frjáls aðferð, barnaflokkur T7, unglingaflokkur T3, ungmennaflokkur T3 og opinn flokkur T3
  1. Úrslit
  • Fjórgangur: opinn flokkur, barnaflokkur, unglingaflokkur og ungmennaflokkur
  • Fimmgangur: opinn flokkur
  • Tölt: barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur og opinn flokkur
  1. 100 m skeið (flugskeið)

Takið eftir að í barnaflokki verður keppt í V5 (frjáls ferð á tölti, brokk, fet og stökk) og í T7 (hægt tölt og tölt á frjálsri ferð). Við skráninguna heitir fjórgangurinn samt V2 í barnaflokki eins og í hinum flokkunum.

Skráningar:
Eins og áður skrá keppendur sig með Skraningakerfi SportFengs. Þurfi einhver aðstoð við skráningar er sjálfsagt að hafa samband við:

Svölu í 861 4466 eða budardalur@simnet.is

Þórð í 893 1125 eða thoing@centrum.is

Athugið að í fjórgangi barnaflokks þarf að skrá í V2 þó keppt verði í V5.

Ganga þarf frá greiðslu skráningagjalda með innlögn á bankareikning en þær upplýsingar koma fram í skráningarferlinu, munið bara að fara inn í vörukörfu í lokin og að klára öll skref til enda. Athugið að skráningin verður ekki virk fyrr en gjaldkeri hefur merkt við að greiðsla hafi borist!

Gjaldið er kr. 1.500 á skráningu. Síðasti dagur skráninga er fimmtudagurinn 14. apríl og það sama gildir um greiðslu skráningagjalda. Í pollaflokkinn er skráð á staðnum og þar eru engin skráningagjöld.

Mótanefnd Glaðs