Allir með leikarnir !
Stjörnuleikar ,,Allir með“ verða haldnir í íþróttamiðstöðinni í Búðardal sunnudaginn 8. mars á milli kl 13:00 – 14:00
Milli kl 14:00-15:00 opnar húsið fyrir öll áhugasöm sem vilja koma og prófa það sem er í boði.
Um er að ræða samstarfsverkefni UDN og aðildarfélaganna, Dalabyggðar og svæðisfulltrúa íþróttahéraða á Vesturlandi.
Þetta er skemmtilegur íþróttadagur hugsaður fyrir börn á öllum aldri með sérþarfir sem og þau börn sem hafa ekki fundið sig hingað til í hefðbundnu íþróttastarfi.
Þetta er dagur fyrir leik, gleði og samveru. Öll fá að prófa ýmsar íþróttagreinar og leiki ásamt því að hitta lukkudýr ,,Allir með“ verkefnisins, hann ofurskemmtilega Sóla.
Öll fjölskyldan er velkomin og vinirnir líka!
Viðburðurinn er styrktur af Hvatasjóði Íþróttahreyfingarinnar
