Komdu í fotbolta með Mola- Reykhólar
Verkefnið „Komdu í fótbolta með Mola“ er hafið. Siguróli Kristjánsson, betur þekktur sem Moli, er umsjónarmaður verkefnisins og mun hann ferðast um landið í sumar.
Moli verður á Reykhólum þann 24. júní. kl 14:00
Markmiðið með verkefninu er að kynna fótbolta og veita krökkum sem búa á minni stöðum á landinu aðgengi að fótboltaæfingu í sinni heimabyggð því nokkuð algengt er að krakkar sæki fótboltaæfingar út fyrir sinn heimabæ á minni stöðum á landsbyggðinni. Einnig vill KSÍ með verkefninu hvetja krakka til að hreyfa sig, borða hollan og næringarríkan mat, sofa nóg og minnka skjánotkun.
KSÍ og Landsbankinn hvetja áhugasama krakka á öllum aldri til að mæta á æfingu hjá Mola.