efri röð frá vinstir: Aron Ívar Baldursson, Almar Þór Baldursson, Hersteinn Hugi Jensson, Hrólfur Logi Guðmundsson og Jóhann Elís Katarínusson Neðri röð frá vinstri: Freyja Sjöfn Einarsdóttir, Svana Rós Svavarsdóttir og Aníta Aldís Brynjarsdóttir

6. flokkur Undra stóð sig með glæsibrag á Króksmótinu 8.-9. ágúst

UDNFréttir

efri röð frá vinstir: Aron Ívar Baldursson, Almar Þór Baldursson, Hersteinn Hugi Jensson, Hrólfur Logi Guðmundsson og Jóhann Elís KatarínussonNeðri röð frá vinstri: Freyja Sjöfn Einarsdóttir, Svana Rós Svavarsdóttir og Aníta Aldís Brynjarsdóttir

Efri röð frá vinstri: Aron Ívar Baldursson, Almar Þór Baldursson, Hersteinn Hugi Jensson, Hrólfur Logi Guðmundsson og Jóhann Elís Katarínusson. Neðri röð frá vinstri: Freyja Sjöfn Einarsdóttir, Svana Rós Svavarsdóttir og Aníta Aldís Brynjarsdóttir

Krakkarnir í 6. flokki knattspyrnuliðs Undra stóðu sig gríðarlega vel á Króksmótinu sem haldið er á Sauðárkróki ár hvert og er þar spilaður 5 manna fótbolti. Um 90 lið tóku þátt alls staðar af landinu og var mikil stemning á Sauðárkróki þessa helgi, 8.-9. ágúst. Um kvöldið var haldin kvöldvaka á mótssvæðinu þar sem Maron Birnir sá um að skemmta liðinu.

Laugardagur
Fyrsti leikur liðsins var gegn Knattspyrnufélagi Dalvíkur þar sem Undramenn gerðu vel og unnu þann leik 2:1. Eftir sigurinn fékk liðið örfáar mínútur til þess að undirbúa sig fyrir næsta leik en þar tapaði Undri naumlega gegn Völsungi í markaleik 3:4. Næsta verkefni var að spila gegn Knattspyrnufélagi Akureyrar en sá leikur endaði með 1:4 tapi. Síðasti leikur dagsins var gegn liðinu Neisti Drangey en þar höfðu Undramenn betur í æsispennadi leik sem endaði 3:2.

Sunnudagur
Undramenn byrjuðu daginn eldsnemma þegar þeir mættu liði Þórs frá Akureyri klukkan 08:30 og sigruðu þann leik þæginlega 5:2. Því næst spilaði Undri gegn heimamönnunum sjálfum í liði Tindastóls og tapaði naumlega gegn þeim 3:4. Síðustu tveir leikir mótsins voru gegn tveim liðum frá KA, sá fyrri endaði með 3:3 jafntefli og síðasti leikur liðsins á mótinu endaði með 3:2 sigri! Eftir hádegi var boðið upp á pulsur áður en þátttakendur fóru að taka til og gera sig klár til brottfarar.

6. flokkur Undra stóð sig með prýði á mótinu. Þau spiluðu 8 leiki – sigruðu 4 og gerðu 1 jafntefli. Í þessum 8 leikjum voru gerð heil 45 mörk sem er heilmikil skemmtun! Undri endaði í 2. sæti í sínum riðli sem er frábær árangur.