Stjórn
Nafn | Staða | Símanr | Tölvupóstur |
Styrmir Sæmundsson | Formaður | 847-8097 | |
Herdís Erna Matthíasdóttir | Ritari | 690 3825 | |
Sandra Rún Björnsdóttir | Gjaldkeri | 867 0250 | |
Um félagið
Ungmennafélagið Afturelding var stofnað árið 1924.
Af vef Reykhólahrepps (http://www.reykholar.is/frettir/90_sambandsthing_UDN_haldid_a_Reykholum/)
„Meðal sambandsfélaga UDN er Ungmennafélagið Afturelding í Reykhólahreppi, sem stofnað var árið 1924. UDN tók á sig núverandi form árið 1972 þegar sameinuð voru Ungmennasamband Dalamanna (stofnað árið 1918) og Ungmennasamband Norður-Breiðfirðinga (stofnað árið 1936).
Í 90 ára afmælisfagnaðinum, sem haldinn var í Búðardal, flutti Egill Sigurgeirsson á Mávavatni á Reykhólum samantekt um stofnun Ungmennasambands Norður-Breiðfirðinga og ungmennafélög sem starfað hafa í Austur-Barðastrandarsýslu. Þar kemur fram, að á fyrri tíð voru starfandi ungmennafélög í öllum hreppunum fimm í sýslunni, sem frá 1987 mynda saman Reykhólahrepp hinn nýja. Eftirfarandi kom fram í máli Egils:
Ungmennasamband Norður-Breiðfirðinga var stofnað í Flatey 1. desember 1936 og hafði Ungmennafélagið í Flatey forgöngu um stofnun þess. Sambandssvæðið spannaði Austur-Barðastrandarsýslu með eftirtöldum félögum:
- Ungmennafélagið í Flatey, stofnað 1909 (ekki vitað hvenær það varð óvirkt).
- Ungmennafélagið Vísir í Múlasveit, stofnað 1928 (síðasti skráði fundur 1957).
- Ungmennafélagið Hvöt í Gufudalssveit, stofnað 1927 (starfsemin leggst af um 1956).
- Ungmennafélagið Unglingur í Geiradal, stofnað 1909 (síðasti skráði fundur 1980, sameinað Aftureldingu 1989).
- Ungmennafélagið Elding í Reykhólasveit, líklega 1906-1910, en litlar heimildir eru til um félagið.
- Ungmennafélagið Afturelding í Reykhólasveit, stofnað 1924, starfar enn og er jafnframt eina starfandi ungmennafélagið í Austur-Barðastrandarsýslu / Reykhólahreppi.
Áður en Ungmennasamband Norður-Breiðfirðinga var stofnað tilheyrðu félögin á svæðinu Ungmennasambandi Vestfjarða (UMSV).“