Ársþing UDN 2017 verður haldið í Tjarnarlundi fimmtudaginn 30. mars kl. 18. Í ár mun Ungmennafélagið Stjarnan halda þingið. Kjörbréf verða send á formenn aðildarfélaga UDN. Dagskrá þingsins: Þingsetning Kosning þingforseta Kosning annarra starfsmanna þingsins, 2 fundarritarar og 3ja manna kjörbréfanefnd Skýrsla stjórnar Álit kjörbréfanefndar Ársreikningur ársins 2016 kynntur Umræður um skýrslu stjórnar og reikning. Reikningar bornir upp til …
SamVest æfingabúðir UDN á Laugum
Um helgina voru æfingabúðir á vegum SamVest á Laugum í Sælingsdal. 32 krakkar mættu frá fjórum félögum (HSS, Skipaskagi, Víkingur Ólafsvík og UDN). Æfingabúðirnar gengu mjög vel. Þeir Hermann Þór Haraldsson og Kormákur Ari Hafliðason frá FH sáum um æfingarnar á laugardeginu og Eva Kristín (Víkingur Ólafsvík), Sigríður Drífa (HSS) og Kristín Halla (U.m.f. Grundarfjörður) sáum um æfingarnar á sunnudeginum. …
Tölt í höllinni laugardaginn 25. febrúar
Töltmót Glaðs fer fram laugardaginn 25. febrúar í Nesoddahöllinni og hefst stundvíslega klukkan 14:00. Keppt verður í T7 í öllum flokkum og það á að ríða þannig: einn hringur hægt tölt, snúið við, svo tveir hringir fegurðartölt. Tveir eru inná í einu og öllum er stjórnað af þul. Keppt verður í kvenna- og karlaflokki auk yngri flokka, háð þátttöku þó eins …
Mót og fleira frá Hestamannafélaginu Glað
Smalinn og skemmtitöltið föstudaginn 3. febrúar Keppt verður í Smala í Nesoddahöllinni föstudaginn 3. febrúar og hefst keppni kl. 20:00. Brautin verður tilbúin kl. 17 á mótsdag svo að keppendur geta prófað hana fyrir sjálfa keppnina. Keppt verður í polla-, barna, unglinga, ungmenna- og opnum flokki (háð þátttöku). Svala (861 4466, budardalur@simnet.is) og Þórður (893 1125, thoing@centrum.is) taka við skráningum …
Starfsstyrkur Dalabyggðar
Stjórn UDN auglýsir eftir umsóknum. Tekið verður við umsóknum til 1. mars 2017. Úthlutað verður sem næst 1. apríl 2017, eða eftir samkomulagi. Umsóknir skulu berast í tölvupósti á udn@udn.is. Í samræmi við lið 2 í samstarfssamningi Ungmennasambands Dalamanna og Norður Breiðfirðinga (UDN) og Dalabyggðar tekur UDN að sér að úthluta starfsstyrkjum til aðildarfélaga sinna, sem starfandi eru innan Dalabyggðar, samkvæmt …
UDN og Snæfell hefja samstarf í knattspyrnu
UDN og Snæfell hafa gert samstarfssamning í knattspyrnu hjá meistaraflokki karla. Félögin munu keppa í Lengjubikarnum og í 4. deild í sumar. Í Lengjubikarnum munu þau vera í riðli með Álftanesi, Árborg, Mídasi, Stál-úlfi og Ými. Fyrsti leikurinn verður á móti Mídasi í Akraneshöllinni föstudaginn 10. mars kl. 20. Einnig munu liðin keppa saman í 4. deild í sumar. Æfingar …
Reiðnámskeið í Nesoddahöllinni
Linda Rún Pétursdóttir, reiðkennari verður með námskeið hjá okkur í vetur. Fyrsta námskeiðið verður helgina 21.-22. janúar, en framhaldið er óráðið ennþá. Fyrirkomulag verður með svipuðu sniði og í fyrra. Hver tími er 40 mínútur en einkatímar 30 mínútur. Hóptímar- hvert barn 1.600 kr. tíminn Hóptímar- hver fullorðinn 2.600 kr. tíminn Einkatímar- börn 3.000 kr. tíminn Einkatímar- fullorðnir 4.000 kr. …
Samæfing á vegum SamVest
Eins og fram hefur komið í fréttum á FB-síðu SamVest, þá stefnum við að samæfingu haustsins í Kaplakrika – föstudaginn 18. nóvember 2016 kl. 17.00 – 20.00. Æfingin er fyrir 10 ára og eldri á starfssvæði SamVest. Mætið með æfingaföt og innanhússíþróttaskó, gaddaskó þau sem eiga. Þjálfarar FH sjá um þjálfunina, mögulega þjálfarar frá okkar félögum líka. Nesti á æfingunni …
Lokahóf UDN – sumarið 2016
Lokahóf UDN fór fram miðvikudaginn 7. september. Góð mæting var og verðlaun voru veitt fyrir afrek sumarsins. Verðlaunahafa má sjá hér: Frjálsar íþróttir Hvatningarverðlaun (mæting á æfingar og mót): Aníta Hanna Kristjánsdóttir Ármann Ólafsson Atli Hjaltason Baldur Valbergson Bergjón Paul Jenke Bjarni Ágústsson Borghildur Birna Eiríksdóttir Dagný Sara Viðarsdóttir Grétar Jónatan Pálmason Gunnlaugur Þorsteinsson Halldór Óli Ólafsson Ísak Logi …
Fosshótelmót – Knattspyrnumót á Patreksfirði
27. ágúst verður haldið knattspyrnumót á Patreksfirði. Allir eru velkomnir og stefnir UDN á að senda lið og einstaklinga.