Stjórn UDN auglýsir eftir umsóknum. Tekið verður við umsóknum til 1. mars 2018. Úthlutað verður sem næst 1. apríl 2018, eða eftir samkomulagi. Umsóknir skulu berast í tölvupósti á netfang Ungmennasambandsins: udn@udn.is.
Í samræmi við lið 2 í samstarfssamningi Ungmennasambands Dalamanna og Norður Breiðfirðinga (UDN) og Dalabyggðar tekur UDN að sér að úthluta starfsstyrkjum til aðildarfélaga sinna, sem starfandi eru innan Dalabyggðar, samkvæmt reglum þessum.
Megináhersla er lögð á að styrkja starf með börnum og unglingum yngri en 16 ára og að starfsemin sé á forsendum uppeldislegra gilda og forvarna í víðum skilningi.
Sjá úthlutunarreglur HÉR.
Ef það eru einhverjar spurningar þá er hægt að hafa samband með því að senda tölvupóst á udn@udn.is