Fyrirmyndarhérað ÍSÍ

Hugmynd um UDN sem fyrirmyndarhérað ÍSÍ hafði blundað hjá sambandinu í einhvern tíma. Á formannafundi í desemberbyrjun  2024 var tekin ákvörðun að leggja af stað  í þá vinnu. Unnið var að verkefninu í febrúar og mars 2025. Fyrir 104.  sambandsþing  2. apríl 2025  höfðu verið send þinggögn til þingfulltrúa með tillögum að stefnum og áætlunum. Handbókin var einnig klár yrði allt samþykkt. Á þingingu voru stefnur og áætlanir samþykktar samhljóða sem og lagabreytingar.
UDN fékk veitta viðurkenninguna Fyrirmyndarhérað ÍSÍ á þinginu, hana veitti Garðar Svansson þáverandi nefndarmaður í framkvæmdastjórn ÍSÍ.
Stjórn UDN stefnir að því að öll aðildarfélög þess verði fyrirmyndarfélög ÍSÍ. Þessari handbók er ætlað að innihalda upplýsingar um innviði í starfsemi UDN.
Handbókin er lifandi skjal sem tekur breytingum eftir því sem aðstæður, lög og reglur breytast.

hér að neðan má finna handbók þess efnis

UDN – fyrirmyndarhérað lok 1.5. 2025