Bogfimisamband Íslands (BFSÍ) hélt alþjóðlegt þjálfaranámskeið stig 1 (World Archery Coach Level 1 seminar – WACL1) á Íslandi 9-14 júní 2025. Námskeiðið var styrkt af Ólympíusamhjálpinni (OS – Olympic Solidarity) með stuðningi frá ÍSÍ og heimssambandinu (WA – World Archery). Skírteinið (diploma) gefur þeim sem ljúka námskeiðinu og prófinu alþjóðleg þjálfararéttindi stig 1 (World Archery Level 1 Coach) til fjögurra ára. Elísabet Árdís Kristjánsdóttir hjá UMF. aftureldingu var þar með fyrst til að öðlast þessi réttindi hjá félaginu og óskum við henni innilega til hamingju með það. Og til hamingju UMF. Afturelding með löggildan þjálfara. Aðildarfélög BFSÍ ráða valinu hver fer á þeirra vegum á þjálfaranámskeið hjá BFSÍ, enda tilgangur námskeiðana að búa til virka þjálfara sem eru að styðja uppbyggingu aðildarfélaga sinna. Almennt er gert ráð fyrir því að þátttakendur hafi lokið bóklega hluta þjálfaranámskeiðs stig 1 á netinu og starfi sem leiðbeinendur í sínu félagi á æfingum/námskeiðum í eitt ár undir öðrum þjálfurum innan félagsins áður en þeir sitja verklega hluta þjálfarastigs 1. Bóklegi hluti þjálfarastigs 1 er opinn allt árið og mögulegt að skrá sig hér : https://bogfimi.is/thjalfaranamskeid/
nánar má lesa um ný yfirstaðið námskeið hér: https://bogfimi.is/2025/06/17/10-na-althjodlegu-thjalfarastigi-1-i-samstarfi-vid-olympiusamhjalpina/