Vinnustofa fyrir foreldra barna í íþróttastarfi

UDNUncategorized

Íþróttahéruð á Vesturlandi (HSH, ÍA, UDN og UMSB) bjóða foreldrum/forráðamönnum iðkenda á sínu starfsvæði að taka þátt í áhugaverðri og mikilvægri vinnustofu. Sex staðsetningar og dagsetningar verða í boði í febrúar og mars. Frjálst er að skrá sig á hvaða vinnustofu sem er óháð búsetu. Þjálfarar, annað starfsfólk félaga/deilda og stjórnarfólk er einnig velkomið.
Daði Rafnsson stýrir vinnustofunum en hann er doktorsnemi við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík, fagstjóri Afrekssviðs Menntaskólans í Kópavogi og hefur starfað fyrir fjölda íþróttaliða hérlendis og erlendis.
Á vinnustofunni verður fjallað um hvaða þættir skipta mestu máli til að börn eigi sem jákvæðasta upplifun í íþróttum. Einblínt verður á hlutverk foreldra/forráðamanna, viðhorf þeirra og samskipti sem hafa mikil áhrif á ungt íþróttafólk.
Hver vinnustofa tekur um 2 klst. og er aðgangur ókeypis.
Boðið verður upp á kaffi og létt snarl.