Aðalfundur Glaðs verður haldinn í Leifsbúð í Búðardal mánudaginn 11. apríl næstkomandi og hefst fundurinn kl. 20:30.
Dagskrá skv. lögum félagsins:
- Kosning starfsmanna fundarins
- Skýrsla stjórnar um starfsemi á liðnu ári
- Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
- Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.
- Reikningar bornir undir atkvæði.
- Lagabreytingar [engar fyrirhugaðar].
- Kosningar skv. 6. grein.
- Kosning nefnda skv. tillögu stjórnar eða aðalfundar.
- Ákvörðun árgjalds.
- Önnur mál.
Undir 7. dagskrárlið verða að þessu sinni kosnir ritari, gjaldkeri og varamenn þeirra í stjórn til 3 ára, annar tveggja skoðunarmanna til 2 ára, fulltrúi á Landsþing LH og fulltrúar á sambandsþing UDN.
Á fundinum mun stjórn félagsins óska eftir heimild til að ákveða að Glaður leggi fram fé í því skyni að lækka skuldir Nesodda ehf.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfund og taka þátt í umræðum sem varða félagið okkar!
Fréttin er tekin af heimasíðu Glaðs (www.gladur.is).