Unglingalandsmót á Sauðárkróki

Unglingalandsmót á Sauðárkróki
10/06/2023 Stjórn UDN

Unglingalandsmót UMFÍ hafa verið haldin frá árinu 1992. Mótin hafa vaxið og sannað gildi sitt sem glæsilegar fjölskyldu- og íþróttahátíðir þar sem saman koma þúsundir barna og ungmenna ásamt fjölskyldum sínum og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá.

Unglingalandsmót UMFÍ er vímuefnalaus fjölskylduhátíð þar sem börn og unglingar á aldrinum 11 – 18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum en samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Unglingalandsmótin hafa hvarvetna vakið mikla athygli og þeir fjölmörgu sem þau hafa sótt hafa verið öðrum til mikillar fyrirmyndar með allri framkomu hvort sem er í keppni eða leik

Unglingalandsmót UMFÍ verður á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina 3. – 6. ágúst 2023.

Skráningargjald er aðeins 8.900 krónur. Innifalið í miðaverði er aðgangur að tjaldstæði fyrir alla fjölskylduna, aðgangur fyrir alla á tónleika á hverju kvöldi og í alla afþreyingu.
Öll ungmenni á aldrinum 11 – 18 ára geta skráð sig til leiks.
Þessar greinar eru í boði:
Badminton – Bandý – Biathlon – Bogfimi – Borðtennis – Fimleikafjör – Frisbígolf – Frjálsar íþróttir – Glíma – Golf – Götuhlaup – Hestaíþróttir – Hjólreiðar – Íþróttir fatlaðra – Júdó – Knattspyrna – Kökuskreytingar – Körfubolti – Motocross – Pílukast – Skák – Stafsetning – Strandblak (grasblak) – Strandhandbolti (grashandbolti) – Sund – Upplestur – Stígvélakast.
Opnað verður fyrir skráningu þriðjudaginn 4. júlí 2023.

UDN mun styrkja keppendur eins og undanfarin ár, í ár greiðir UDN 5.000 kr af skráningargjaldi hvers keppenda. Fjölmennum og eigum góða stund saman með börnum og ungmennum okkar.

Sjáumst í Skagafirði!