Jólamót HSH í frjálsum íþróttum,
Stykkishólmi, 6. desember 2015
Hó – hó – hó !!
HSH heldur jólamót í frjálsum íþróttum innanhúss í íþróttahúsinu í Stykkishólmi, sunnudaginn 6. desember 2015. Mótið hefst kl. 10.30 stundvíslega.
Foreldrar eru hvattir til að fylgja og hvetja – og aðstoða við framkvæmd mótsins.
Keppt er í eftirfarandi flokkum og greinum:
- ára og yngri: Langstökki með og án atrennu og 35m hlaupi
- – 10 ára: Langstökki með og án atrennu, hástökki og 35m hlaupi
11 – 12 ára: Langstökki með og án atrennu, hástökki, kúluvarpi og 35m hlaupi
13 – 14 ára: sömu greinum
15 – 16 ára: sömu greinum
17 ára og eldri: sömu greinum
Skráningar eru hjá:
Fyrir Grundfirðinga – hjá Evu Kristínu þjálfara í síma 693-0820 eða netfangið evakristin09@gmail.com
Fyrir Hólmara – hjá Gísla, þjálfara, Stykkishólmi, í síma 861-8389 eða netfangið gislipalsson82@gmail.com
Fyrir aðra – þá má hafa samband við annað hvort Evu eða Gísla.
Þegar skráð er, þarf að gefa upp kennitölu keppanda og greinar sem hann/hún vill keppa í.
Skráningu lýkur föstudagskvöldið 4. desember kl. 21.00.
Fyrir SamVest:
Til mótsins er boðið iðkendum hjá SamVest–félögum. Verið velkomin!
Fyrir gesti (ekki fyrir HSH) – skráningargjald er kr. 250 á hverja grein keppanda og sér viðkomandi félag um greiðslur og fyrirkomulag þeirra. Greiðist inn á reikning HSH, 0321-13-300076, kt. 620169-5289
Síðast en ekki síst hvetjum við ALLA til að mæta í skrautlegum (jóla)sokkum.
Verðlaun verða veitt fyrir:
- skrautlegustu sokkana (keppendur)
- jólalegustu sokkana (keppendur)
- frumlegustu sokkana (allir)
Mætum öll í jólaskapi!
Frjálsíþróttaráð HSH